Laga tengingar við Bluetooth-hljóðtæki og þráðlausa skjái
Bluetooth-hljóð
Ef ekki er nóg að ýta á hnappinn „Tengjast“ í aðgerðamiðstöð til að finna tækið skaltu prófa eftirfarandi:
Gakktu úr skugga um að Windows-tækið þitt styðji Bluetooth og að kveikt sé á Bluetooth. Þú átt að sjá Bluetooth-hnappinn í aðgerðamiðstöðinni.
Ef þú sérð ekki Bluetooth-hnappinn skaltu prófa að uppfæra tækisrekilinn. Svona er farið að: Opnaðu Upphafsvalmyndina, sláðu inn „tækjastjórnun“ veldu það af niðurstöðulistanum, veldu síðan tæki í „tækjastjórnun“ finndu tækið þitt, hægrismelltu á það (eða haltu fingri á því), veldu „Uppfæra rekilhugbúnað“, veldu „Leita sjálfvirkt að uppfærðum rekilhugbúnaði“ og fylgdu síðan skrefunum sem eftir eru.
Ef kveikt er á Bluetooth og rekillinn er uppfærður en tækið virkar samt ekki skaltu prófa að fjarlægja tækið og para það aftur. Svona er farið að: Farðu í Upphafsvalmyndina, sláðu inn „Tæki“, veldu „Bluetooth“, veldu tækið, veldu „Fjarlægja tæki“ og reyndu svo aftur að para.
Tryggðu að kveikt sé á Bluetooth-hljóðtækinu og að hægt sé að finna það. Leitaðu frekari upplýsinga í leiðbeiningunum sem fylgdu tækinu eða farðu á vefsvæði framleiðandans.
Miracast-tæki
Ef ekki er nóg að ýta á hnappinn „Tengjast“ í aðgerðamiðstöð til að finna tækið skaltu prófa eftirfarandi:
Gakktu úr skugga um að Windows-tækið þitt styðji Miracast með því að skoða upplýsingarnar sem fylgdu því eða með því að fara á vefsvæði framleiðandans.
Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Wi-Fi.
Gakktu úr skugga um að skjárinn sem þú vilt tengjast við styðji Miracast og að kveikt sé á honum. Ef skjárinn styður ekki Miracast þarftu Miracast-millistykki (stundum kallað „tengistykki“) sem tengja má við HDMI-tengi.
WiGig-tæki
Ef ekki er nóg að ýta á hnappinn „Tengjast“ í aðgerðamiðstöð til að finna tækið skaltu prófa eftirfarandi:
Gakktu úr skugga um að Windows-tækið þitt styðji WiGig og að kveikt sé á því. Ef tölvan þín styður WiGig muntu sjá WiGig-hnapp í „Stillingar > „Flugstilling“.
Gakktu úr skugga um að skjárinn styðji WiGig. Ef svo er ekki þarftu að nota WiGig-tengikví.