laga tengingar við bluetooth-hljóðtæki og þráðlausa skjái í windows 10 mobile

Laga tengingar við Bluetooth-hljóðtæki og þráðlausa skjái

Bluetooth-hljóð

Ef ekki er nóg að ýta á hnappinn „Tengjast“ í aðgerðamiðstöð til að finna Bluetooth-hljóðtækið skaltu prófa þetta:
Gakktu úr skugga um að Windows-tækið þitt styðji Bluetooth og að kveikt sé á Bluetooth. Þú sérð Bluetooth-hnapp í aðgerðamiðstöðinni.
Tryggðu að kveikt sé á Bluetooth-hljóðtækinu og að hægt sé að finna það. Leitaðu frekari upplýsinga í leiðbeiningunum sem fylgdu tækinu eða farðu á vefsvæði framleiðandans.


Ef þú ert að leita að öðrum Bluetooth-tækjum en hljóðtækjum skaltu fara á Bluetooth-stillingasíðuna. Opnaðu „Stillingar“, veldu „Tæki“, veldu „Bluetooth“, veldu tækið, veldu „Fjarlægja tæki“ og reyndu svo aftur að para.

Miracast-tæki

Ef ekki er nóg að ýta á hnappinn „Tengjast“ í aðgerðamiðstöð til að finna tækið skaltu prófa þetta:
Gakktu úr skugga um að Windows-tækið þitt styðji Miracast með því að skoða upplýsingarnar sem fylgdu því eða með því að fara á vefsvæði framleiðandans.
Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Wi-Fi.
Gakktu úr skugga um að skjárinn sem þú vilt tengjast við styðji Miracast og að kveikt sé á honum. Ef skjárinn styður ekki Miracast þarftu Miracast-millistykki (stundum kallað „tengistykki“) sem tengja má við HDMI-tengi.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *